Forsíða

Ungmennafélag Biskupstungna

Sundnámskeið

Íþróttadeild Ungmennafélags Biskupstungna stendur fyrir sundnámskeiði fyrir yngri kynslóðina dagana 21.-31. maí í sundlauginni í Reykholti. Námskeiðið er ætlað börnum frá 3 ára aldri. Yngri börn eru velkomin ef foreldrar treysta þeim til og þá í samráði við sundkennara. Það er Guðbjörg H. Bjarnadóttir íþróttakennari sem mun stýra námskeiðinu. Gert er ráð fyrir 6-10 börnum í hverjum hóp. Námskeiðið er 8 skipti en kennt er í 50 mínútur í hvert sinn (jafnlangur tími og 10*40 mín.) verð fyrir 8 skipti er kr. 10.000 og greiðist í upphafi námskeiðs. Systkini greiða 9.000 hvert. Hópaskipting ræðst af fjölda barna á námskeiðinu en gert er ráð fyrir tveimur hópum, börn vön og sjálfbjarga og börn sem þurfa aðstoð foreldra. Ath. kennt er 21., 22., 23., 24., og 25 maí og svo 29., 30. og 31. maí. Yngri börn byrja kl. 12:30. Eldri börn byrja kl. 13:20

Skráning fer fram hjá Öglu Þyri á netfanginu Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Nánari upplýsingar í síma 699-5038 og 869-3352. Vinsamlegast látið koma fram fæðingardag og nafn barns ásamt símanúmeri forráðamanns.

 

Lokaslútt íþróttadeildar

Íþróttadeildin stóð fyrir lokaslútti 3. maí sl. Æfingum vetrarsins lauk þennan dag og var iðkendum félagsins boðið í grillaðar pylsur. Veðrið lék við iðkendur og þjálfara félagsins sem spjölluðu saman og nutu góða veðursins.

loka2_12

 

 

 

 

 

 

 

 

 

loka1_12

 

Góður árangur í Sveitaglímu

Bikarglíma í sveitaglímu fór fram á Ísafirði 14. apríl sl. Umf. Bisk. átti átta keppendur á mótinu sem kepptu undir merkjum HSK. Okkar fólk stóð sig mjög vel eins og sést á úrslitunum hér fyrir neðan. Heildarúrslit mótsins er hægt að sjá á ww.glima.is.

Stelpur, 11-12 ára
1. sæti
Sigríður Magnea Kjartansdóttir
Laufey Ósk Jónsdóttir
Rósa Kristín Jóhannesdóttir
Rakel Sara Hjaltadóttir

Strákar, 11-12 ára
1. sæti
Sölvi Svavarsson
Sölvi Freyr Jónasson

Stelpur, 15-16 ára
2. sæti
Vilborg Rún Guðmundsdóttir
Sóley Erna Sigurgeirsdóttir

 

Frjálsíþróttamót U.M.F.Bisk

Frjálsíþróttamót U.M.F.Bisk. verður haldið laugardaginn 5.maí í íþróttamiðstöðinni í Reykholti.

Dagskrá
Kl. 14.00 Frjálsíþróttaleikar fyrir börn í 1.-3. bekk
Kl. 14.50 Verðlauna afhending fyrir frjálsíþróttaleikana
Kl. 15.00 Frjálsíþróttamót fyrir börn í 4.-10. bekk
Kl. 17.00 Verðlauna afhending og mótslok

Keppnisgreinar 1.- 3. bekkur:
Kraftkast
Keðjulangstökk
Uppstökk
Grindarboðhlaup
Kringlurúll
Hliðarhopp

Keppnisgreinar 4.- 10.bekk:
Kúluvarp
Langstökk
Hástökk

Allir sem eru skráðir í ungmennafélagið eru gjaldgengir á mótið. Ætlast er
til þess að foreldrar fylgi börnum sínum og eru þeim til stuðnings.
Skráning fer fram á staðnum. Keppt verður í aldursflokkunum 10-12, 13-14 og
15-16 ára.

Íþróttadeild UMF.Bisk.

 

Úrslti í grunnskólamóti í glímu

Grunnskólamót Íslands í glímu fór fram á Ísafirði 14. apríl sl. Grunnskóli Bláskógabyggðar sendi átta keppendur til leiks sem allir eru félagsmenn í Umf. Bisk. Okkar keppendur stóðu sig allir mjög vel en skólinn eignaðist tvo grunnskólameistara. Ferðin tókst mjög vel og voru allir keppendur sér og sínum skóla til mikillar fyrirmyndar bæði innan vallar sem utan. Meðal áhorfenda á mótinu voru Ólafur Ragnar, forseti Íslands og Dorrit. Hér fyrir neðan er árangur okkar keppenda, en heildarúrslit mótsins er hægt að sjá á www.glima.is.

Stelpur, 5.bekkur
4. Rósa Kristín Jóhannesdóttir

Stelpur, 6.bekkur
1.-2. Sigríður Magnea Kjartansdóttir
3. Laufey Ósk Jónsdóttir
5. Rakel Sara Hjaltadóttir

Stelpur, 8.bekkur
2. Sóley Erna Sigurgeirsdóttir

Stelpur, 10.bekkur
3.-4. Vilborg Rún Guðmundsdóttir

Stelpur, 5.bekkur
1. Sölvi Svavarsson
2. Sölvi Freyr Jónasson

 

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Ungmennafélag Biskupstungna Bláskógabyggð

Viðburðadagatal

maí 2012
mþmffls
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031 

Getraunanúmerið

Getraunanúmer Ungmennafélagsins er 803. Takk fyrir stuðninginn.

Spurning dagsins

Hver er skemmtilegasta íþróttin?
 

Innskráning

Opnunartímar Íþróttamiðstöðvar í Reyholti

 

 

Vikudagur

Sumaropnun

01.06 - 07.08

2011

Mánudagur 10.00-21.00
Þriðjudagur 10.00-21.00
Miðvikudagur 10.00-21.00
Fimmtudagur 10.00-21.00
Föstudagur 10.00-18.00
Laugardagur 10.00-18.00
Sunnudagur 10.00-18.00


Gullkorn

Aðgát skal höfð í nærveru sálar.

Sterk bein þarf til að þola góða daga.

Kastaðu ei steinum úr glerhúsi.

Ef þú vilt bæta heiminn byrjaðu þá á miðpunkti hans - sjálfum þér.

Öruggasta leiðin til að ganga vel er að verða ástfanginn af iðju sinni.

Gestir á síðunni

Það er 1 gestur á síðunni núna